Yfirmenn Carrick ekki tjáð honum hvort starfið sé öruggt eða í hættu

Michael Carrick, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur ekki fengið neina tryggingu fyrir því að halda starfi sínu eftir leik liðsins gegn Aston Villa á sunnudag.

United er komið niður í fallsæti en liðið hefur átt afar erfitt uppdráttar á tímabilinu.

Forráðamenn félagsins ákváðu að gefa Carrick meiri tíma eftir 3-0 tap gegn Bournemouth fyrir tveimur vikum en framtíð hans er áfram í óvissu.

United tapaði gegn Chelsea í síðustu umferð en vann mikilvægan sigur á Roma í Meistaradeildinni í vikunni eftir tíu leiki án sigurs.

Carrick var spurður hvort honum hefði verið tryggt að stýra liðinu eftir helgina.

„Nei. Ég held bara áfram eins og venjulega. Það sem gerist, gerist,“ sagði Carrick.

Hann staðfesti jafnframt að hann og Bruno Fernandes hefðu leyst úr ágreiningi sínum eftir gagnrýni fyrirliðans á leikaðferðir hans.

Nú gæti landsleikjahléið reynst afgerandi fyrir framtíð Carrick á Old Trafford.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅