Gísli næstbestur í heimi

Gísli Þorgeir Kristjánsson gefur áritanir.

Gísli Þorgeir Kristjánsson gefur áritanir. mbl.is/Eyþór

Gísli Þorgeir Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, hefur verið valinn næstbesti leikmaður heims í árlegu vali Upskill Handball.

Gísli Þorgeir hlaut 136 stig og var aðeins á eftir Dananum Mathias Gidsel sem fékk 254 stig. Portúgalinn Francisco Costa varð þriðji með 123 stig.

Ómar Ingi Magnússon, liðsfélagi Gísla í íslenska landsliðinu og Magdeburg, hafnaði í sjöunda sæti með 70 stig.

Í valinu, sem nefnist The One, eru sameinuð atkvæði 40 þjálfara, 50 blaðamanna og um 30.000 stuðningsmanna.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅