Klámtrixið sem karlar segja að veiti „alveg nýja tilfinningu“

Það er umdeilanlegt hvor 69 sé „versta kynlífsstellingin“ eða hvort karlar séu ekki nægilega góðir í að endurgjalda munnmök. Í endalaust mörgum klámmyndböndum má sjá konur veita körlum munngælur. Í þeim er eitt gert sem hefur oft verið sagt vera frekar til að krydda hina sjónrænu upplifun frekar en að veita karlinum ánægju eða unað.

„Kinnaýtið“ er það sem um ræðir en í því felst að kónginum (á limnum) er þrýst upp að kinninni innanverðri. Þá er hægt að sjá kinnina þrýstast út og segja margir karlar að þetta veiti „alveg nýja tilfinningu“.

Umræða um þetta fór nýlega á mikið flug á samfélagsmiðlinum Reddit eftir að kona spurði hvort einhver nautn væri í þessu fyrir karla.

„Í mörgum af þeim myndböndum, sem ég horfi á, þá þrýsta konan eða karlinn limnum inn í kinnina og nudda honum þar frekar en að hann fari dýpra inn í munninn,“ skrifaði hún og bætti við: „Er þetta algengt í kynlífi og er þetta betra en venjulega aðferðin?“

Hvað segja karlarnir?

Karlar voru ekki lengi að láta til sín taka við lyklaborðið og lýstu óspart yfir ánægju sinni með þessa tækni og játuðu að þeir væru mjög opnir fyrir að makar þeirra prófuðu þetta á þeim.

„Einu sinni eða tvisvar í þessu öllu er frábært til að krydda þetta aðeins,“ skrifaði einn og annar skrifaði: „Þetta er betra en venjulegt tott.“

Aðrir sögðu þetta „æsandi“ og „frábært að sjá“ og einn sagði þetta „veita nýja tilfinningu“.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅