Einhver varð að deyja þessa nótt

Sunnudagsmorguninn 14. apríl 2013 undruðust kirkjugestir í bænum Davis í Kaliforníu sig á að Claudia og Oliver væru ekki komin í messu. Þetta var mjög ólíkt þeim og þegar Oliver mætti ekki á tónleika, sem hann ætlaði að sækja, fylltist fjölskylda þeirra áhyggjum.

Ættingi þeirra fór heim til þeirra en náði ekki sambandi við þau. Dóttir Claudia hafði því samband við lögregluna um kvöldið og fór ásamt lögreglumönnum að heimili hjónanna.

Þegar inn var komið blasti hryllileg sjón við. Í svefnherberginu var blóð á veggjum og gólfi. Rúmfötin voru gegnumblaut. Claudia og Oliver lágu hlið við hlið í rúminu. Líkamar þeirra voru þaktir hnífsstungum.

Krufning leiddi í ljós að Claudia Maupin hafði verið stungin 67 sinnum og Oliver Northup 61 sinnum. Magi beggja hafði verið ristur upp og hlutir settir inn í þá. Farsími í maga Claudia og glas í maga Oliver.

Það var ekki að sjá að neitt hefði verið tekið úr húsinu. Það var eins og ætlunin hefði verið að myrða og að markmiðið með innbrotinu hafi bara verið að myrða.

Lögreglan fann bara eina nothæfa vísbendingu í húsinu, fótspor eftir stígvél. Engin fingraför, ekkert DNA.

Athygli lögreglunnar beindist fyrst að fjölskyldu hinna látnu en þrátt fyrir mikla rannsóknarvinnu komst lögreglan ekki nær því að leysa málið.

Óvæntar vendingar

Tveimur mánuðum síðar gerðist svolítið óvænt því þann 16. júní barst lögreglunni ábending frá unglingi sem gat skýrt frá morðunum í smáatriðum. Hann sagði að vinur hans, Daniel Marsh, hefði myrt Claudia og Oliver.

Lögreglumennirnir könnuðust við nafnið. Fimm árum áður hafði 10 ára drengur komist í sviðsljósið í bænum þegar hann var heiðraður fyrir hetjudáð. Hann hafði verið í bíltúr með föður sínum þegar faðirinn fékk hjartaáfall. Drengurinn greip í stýrið og stýrði bílnum út í vegkantinn. Því næst lamdi hann föður sinn ítrekað í bringuna og það dugði til að koma hjartanu í gang á nýjan leik. Faðirinn lifði þetta af.

Rætt var við drenginn í fréttum og sagði hann frá því sem hafði gerst. Hann hét Daniel Marsh.

Daniel Mash glímdi við mikla andlega erfiðleika.

Nú var þessi sami drengur sakaður um að hafa myrt tvær manneskjur og það aðeins 15 ára gamall.

Daniel líktist mörgum öðrum unglingum í bænum, grannur, veiklulegur og með axlarsítt hár.

En Daniel var ekki eins og aðrir á hans aldri. Árið sem hann bjargaði lífi föður síns, varð móðir hans ástfangin af annarri konu. Sú kona hafði kennt honum í fyrsta bekk. Foreldrar hans skildu í kjölfarið.

Virtist stoltur

Skilnaðurinn fór illa í Daniel og hann átti í erfiðleikum. Hugur hans varð dimmur. Næstu árin bjó hann til skiptis hjá föður sínum og móður.

Hann byrjaði að drekka áfengi og nota hass og neysla tók yfirhöndina. Að lokum henti faðir hans honum út. Hann flutti þá til móður sinnar.

Hann var lagður inn á sjúkrahús þegar hann var orðinn 13 ára. Ástæðan var að hann hafði grennst mjög mikið og ljóst var að hann glímdi við átröskun. Andlegt ástand hans versnaði enn frekar og hann var settur á lyf. Þau virtust virka og hann byrjaði að eignast vini og kærustu.

Vinur hans sagði lögreglunni að Daniel hefði haft samband við sig daginn eftir morðin og sagt að hann hefði drepið fólk. Hann virtist stoltur. Vinurinn sagðist ekki hafa trúað honum.

Claudia og Olivier voru myrt á hrottalegan hátt.

Daniel sagði kærustunni sinni þetta líka og sýndi henni fötin sem hann var í nóttina sem hann myrti Claudia og Oliver. Hvorki kærastan né vinurinn vissu hverju þau áttu að trúa. Skap Daniels var óvenjulega gott á þessum tíma.

Í fyrsta sinn í lífinu gekk honum vel í skóla. Hann fékk meira að segja verðlaun fyrir góða ástund.

En vinurinn sagði lögreglunni einnig að vikurnar eftir morðin hafi Daniel orðið sífellt meira ógnandi og bæði vinurinn og kærastan voru hrædd við hann.

Kærastan sleit sambandinu í byrjun júní. Nokkrum vikum síðar braust Daniel inn heima hjá henni seint að kvöldi og stóð skyndilega inni í herberginu hennar.

Kærastan, sem var nú fyrrum kærasta Daniels, var hrædd en hélt ró sinni og slapp ósködduð frá þessu.

Hún sagði vini Daniels, sem hafði heyrt Daniel lýsa morðunum í smáatriðum, og hann fór að óttast um líf sitt. Þess vegna hafði hann samband við lögregluna.

Sérstök yfirheyrsla

Þann 17. júní 2013 var Daniel tekinn til yfirheyrslu. Chris Campion yfirheyrði hann og úr varð mjög sérstök yfirheyrsla. Áhugasamir geta horft á upptöku af henni á YouTube.

Daniel var í svörtum buxum og svörtum stuttermabol. Hann settist á stól í horni yfirheyrsluherbergisins.

Chris spurði hann hvort hann hefði heyrt um þessi hroðalegu morð. Því játaði Daniel en sagðist ekki vita mikið um þau.

Chris spurði út í sjúkrasögu hans og sagðist Daniel hafa byrjað að glíma við andleg veikindi þegar hann var tíu ára.

Hann sagði að í kjölfar skilnaðar foreldra sinna hafi hann upplifað bæði sorg og reiði og hafi beint henni að kærustu móður sinnar, gamla kennaranum hans. Hann sagðist hafa dreymt um að meiða hana af því að honum fannst hún hafa eyðilagt fjölskyldu hans.

Hann sagði síðan frá sjúkrahúsinnlögnum og lyfjagjöf.

Hann sagðist stundum hafa beint reiðinni að sjálfum sér og hafi skorið sig til að fá útrás fyrir tilfinningar sínar. Síðan sýndi hann Chris ör á handleggjunum. Hann sagði einnig að þessi sjálfskaða hegðun hefði einnig orðið til þess að hann hætti að borða og hafi þurft að leggjast inn á sjúkrahús vegna átröskunar.

Í miðri yfirheyrslunni byrjaði Daniel að skilja að lögregluna grunaði að hann hefði myrt Claudia og Oliver. Hann sagði þennan grun hlægilegan, hann væri bara 15 ára.

En Chris gafst ekki upp og ræddi um hversu vel morðin hefðu verið skipulögð. Að þetta væri glæpur sem hefði verið næstum því fullkominn en að lögreglan hefði þó nokkrar vísbendingar til að vinna með. Meðal annars skófar og DNA. Hann sagði að lögreglan vildi rannsaka skó Daniels og farsíma til að sjá hvort síminn hefði verið nærri morðvettvanginum þegar morðin voru framin.

Nú byrjaði Daniel að verða taugaóstyrkur. Hreyfingar hans urðu órólegar og framburður hans var ekki lengur eins öruggur og sannfærandi.

Nú sagði Chris honum að ef hann segði sannleikann gæti hann hjálpað sjálfum sér. þetta virkaði og þegar þrjár klukkustundir og fjörutíu mínútur voru liðnar af yfirheyrslunni lýsti Daniel því yfir að hann vildi frekar vera á geðdeild en í fangelsi.

Chris bað hann um að segja frá fyrsta skiptinu sem hann fann fyrir hvöt til að drepa.

Daniel þagði lengi og síðan byrjaði hann að tala. Hann sagði frá djúpri löngun sinni til að drepa. Að hann hafi fyrst dreymt um að drepa unnustu móður sinnar. Að drepa dýr. Að drepa vini sína. Að drepa kennarana sína. Alla þá sem hann sá, hann vildi drepa þá alla. Hann sagðist ekki getað stöðvað þessar hugsanir. Hann kynnti sér raðmorðingja og fannst þeir frábærir.

Hann horfði á myndbönd af ofbeldi og fólki sem var drepið í raun og veru.

Mikil vellíðan

Þann 13. apríl 2013 lét hann undan hvötum sínum. Hann hafði undirbúið sig mjög lengi. Til að skilja engin spor eftir sig vafði hann límbandi utan um skóna sína, var með skíðagrímu og hanska og fór síðan út í nóttina til að myrða.

Það var algjör tilviljun að hann fór inn á heimili Claudia og Oliver. Hann sá opinn glugga og fór inn um hann.

Hann kom að hjónunum sofandi í svefnherberginu.

Síðan lýsti hann í smáatriðum hvernig hann drap þau.

„Þetta var besta tilfinningin sem ég hef nokkru sinni fundið fyrir,“ sagði hann.

Morðvopnið fannst heima hjá Daniel.

Chris spurði hann út í farsímann og glasið í maga fórnarlambanna. Daniel sagðist hafa sett þetta þar til að villa um fyrir lögreglunni.

Chris spurði hann því næst hvort hann væri búinn að skipuleggja næsta morð. Það staðfesti Daniel. Hann ætlaði að myrða einhver, sem hann hitti af tilviljun, með hafnaboltakylfu.

Þegar Chris spurði hann hvort hann dreymdi um að myrða núna, í miðri yfirheyrslu, játaði Daniel því.

„Hvernig mundirðu gera það?“

Án þess að hika svaraði Daniel: „Kyrkja þig með bindinu þínu. Lemja höfðinu þínu inn í spegilinn þarna svo hann brotni. Nota glerbrot til að skera á slagæð hjá þér. Þrýsta augunum út og berja höfði þínu í vegginn,“ sagði hann og bætti við: „Þetta er ekki persónulegt.“

Dómurinn

Við húsleit heima hjá Daniel fann lögreglan morðvopnið og fötin sem hann hafði klæðst þegar hann myrti hjónin.

Réttarhöldin yfir honum hófust í september 2014. Ákveðið var að rétta yfir honum eins og hann væri fullorðinn.

Réttarhöldin stóðu yfir í tæpar fjórar vikur. Hann var dæmdur í 52 ára fangelsi.

Tveimur árum eftir dómsuppkvaðninguna voru ný lög samþykkt í Kaliforníu. Þau kváðu á um að taka skyldi öll mál, þar sem börn og ungmenni höfðu verið dæmd, til endurskoðunar.

En mörgum til mikils léttis, þá var engin breyting gerð á dómnum yfir Daniel.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅