Manstu þegar Þorvaldur Davíð massaði sig upp?

Þorvaldur Davíð Kristjánsson fer með hlutverk í þáttunum.

Þorvaldur Davíð Kristjánsson fer með hlutverk í þáttunum.

Smartland varð 15 ára 5. maí. Af því tilefni hefur ritstjórn Smartlands tekið sig saman og tínt til gullmola síðustu 15 ára. Á þessum tímamótum er fjör að rifja upp allt þetta skemmtilega, fyndna og dusta rykið af öllu því sem við vorum öll löngu búin að gleyma.

Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari og fór í átak árið 2016. Hann byrjaði að drekka sama ofurdrykk og Kári Stefánsson og lyfta. Fram að þessu hafði líkamsræktin ekki verið mjög markviss.

Það var þjálfarinn Steinar Thors í Mjölni sem tók Þorvald Davíð að sér en Þorvaldur Davíð sagðist Þorvaldur Davíð vilja eflast og styrkjast með átakinu. „Í öðru lagi þá vildi ég bókstaflega efla eigin metnað með því að vinna í „core strength“ æfingum. Og í þriðja lagi þá vildi ég fá endorfínin af stað í líkamanum til að auka almenna gleði og vellíðan. Þetta helst allt hönd í hönd,“ sagði Þorvaldur Davíð meðal annars sem æfði fimm sinnum í viku. 

Þorvaldur Davíð Kristjánsson stundaði ekki markvissa þjálfun áður en hann tók sig á árið 2016. AFP/John MACDOUGALL

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅