Andstæðingi Netanjahú falið að mynda ríkisstjórn

Benjamín Netanjahú, núverandi forsætisráðherra Ísreael, er hér til vinstri. Gadi Eisenkot til hægri. AFP/Samsett mynd

Isaac Herzon, forseti Ísraels, hefur falið Gadi Eisenkot stjórnarmyndunarumboðið í Ísrael. 

Forsetinn fól honum því verkefnið að mynda ríkisstjórn fram yfir núverandi forsætisráðherra, Benjamín Netanjahú, sem hefur gegnt embættinu í 19 ár samanlagt yfir nokkur tímabil. Það er lengur en nokkur annar.

Eisenkot er pólitískur andstæðingur Netanjahú og leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Ísrael. Þingkosningar fóru þar fram fyrir skömmu. 

Hann sagðist í dag ætla að gera allt sem í hans valdi stæði til að mynda ríkisstjórn.

„Nú er tíminn fyrir neyðarstjórn í ljósi þjóðaröryggis. Ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að standa undir traustinu við að mynda ríkisstjórn,“ sagði Eisenkot í færslu á samfélagsmiðlinum X í dag.

Isaac Herzog tilkynnti ákvörðun sína í dag.

Isaac Herzog tilkynnti ákvörðun sína í dag. AFP/Abir Sultan

Leiðtogi stjórnarandstöðunnar

Eisenkot er formaður Yashar-flokksins sem hefur verið skilgreindur sem miðjuflokkur.

Eisenkot er fyrrum hershöfðingi en flokkurinn talar fyrir sterkum hernaðarlegum vörnum Ísrael.

Hann á bandamenn í öðrum flokkum en hvorki hann né Netanjahú fengu nægilega góða kosningu til að ná fram augljósum meirihluta. 

Ísraelskir vinstrimenn mótmæltu skömmu eftir kosningar við heimili Eisenkot og kröfðust þess að arabaflokkar Ísraela fengju sæti við borðið. Hvorki bandamenn Netanjahús né Eisenkots hafa hreinan meirihluta og því gæti farið svo að arabaflokkarnir verði lokapúslið í heildarmyndinni. AFP/Jack Guez

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅