Þrír fundust látnir á heimili árásarmannsins

Erlent | AFP | 7.11.2026 | 21:25

Donald Tusk forsætisráðherra boðaði til blaðamannafundar í kvöld.

Donald Tusk forsætisráðherra boðaði til blaðamannafundar í kvöld. AFP

Þrír einstaklingar, tvær konur og einn karl, fundust látnir á heimili árásarmannsins sem skaut sex til bana í miðborg Kraká í Póllandi í dag.

Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, greindi frá þessu í kvöld. 

Níu eru því látnir í heildina eftir árásir mannsins. 

Tusk segir margt benda til þess að þau sem fundust látin heima hjá manninum séu hluti af nánustu fjölskyldu árásarmannsins. 

Á blaðamannafundi í kvöld lýsti Tusk því jafnframt yfir að þjóðarsorg verði í landinu næstu tvo dagana. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅