Mikill áhugi á sérbýlislóðunum í Garðabæ

Garðabær fékk góð tilboð í sérbýlishúsalóðirnar í Hnoðraholti.

Garðabær fékk góð tilboð í sérbýlishúsalóðirnar í Hnoðraholti. mbl.is/Eyþór

„Við erum ánægð með viðbrögðin og í sjálfu sér getum við sagt að þetta sýni vinsældir svæðisins að ná svona sterkri eftirspurn við þessar aðstæður í efnahagslífinu,“ segir Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar eftir opnun tilboða í byggingarrétt lóða í Hnoðraholti þar sem 454 tilboð bárust í 67 sérbýlishúsalóðir.

Almar segir að áhuginn fyrir einbýlishúsalóðunum sé mikill og svo hafi það farið fram úr væntingum hve mikill áhugi er á raðhúsum á einni hæð til byggingarsamvinnufélaga.

„Við vissum að einbýlishúsalóðirnar yrðu vinsælar og það kom okkur á óvart hvað það voru margir bjóðendur í þessar lóðir því þeir voru fleiri en við áttum von á. Núna er verið að hafa samband við hæstbjóðendur og vinna úr þessu og við munum kynna þetta fyrir bæjarráði nk. þriðjudag.“

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅