Stjarnan að vakna til lífsins
Stjarnan vann stórsigur, 103:79, þegar liðið heimsótti Njarðvík í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld.
Stjörnuliðið er farið að ranka við sér eftir brösuga byrjun en liðið tapaði fyrstu þremur leikjum tímabilsins áður en það lagði ÍR að velli í síðustu viku.
Stjarnan er í sjöunda sæti deildarinnar með tvo sigra en Njarðvík er enn án sigurs og situr sem fastast á botni deildarinnar ásamt Sindra og Ármanni.
Leikurinn var fremur jafn í fyrsta leikhluta en gestirnir tóku öll völd í öðrum leikhluta og voru komnir í 52:35-forystu í hálfleik.
Seinni hálfleikurinn var meira af því sama og Stjarnan sigldi öruggum sigri í höfn án þess að Njarðvíkingar næðu að ógna forystunni.
Nojel Eastern hefur verið frábær frá því hann kom til Stjörnunnar en hann skoraði 24 stig og tók níu fráköst. Hilmar Smári Henningsson skoraði jafnmörg stig og tók sjö fráköst.
Makye Richard var án efa ljósi punkturinn í liði Njarðvíkur í kvöld. Hann skoraði 31 stig, gaf sjö stoðsendingar og tók sjö fráköst.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗