Þrír fundust látnir á heimili árásarmannsins
Erlent | AFP | 7.11.2026 | 21:25
Þrír einstaklingar, tvær konur og einn karl, fundust látnir á heimili árásarmannsins sem skaut sex til bana í miðborg Kraká í Póllandi í dag.
Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, greindi frá þessu í kvöld.
Níu eru því látnir í heildina eftir árásir mannsins.
Tusk segir margt benda til þess að þau sem fundust látin heima hjá manninum séu hluti af nánustu fjölskyldu árásarmannsins.
Á blaðamannafundi í kvöld lýsti Tusk því jafnframt yfir að þjóðarsorg verði í landinu næstu tvo dagana.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗