Handtekinn við heimili sonar Noregsdrottningar

Maður var handtekinn nærri heimili Mariusar Borgs Høibys, sonar Mette-Marit Noregsdrottningar, að sögn norsku öryggislögreglunnar, PST. Lögmaður Høibys segir manninn hafa farið inn á heimili hans og hrint honum.

Høiby afplánar nú fangelsisdóm fyrir nauðganir í stofufangelsi.

„PST hefur staðfest að við handtókum einstakling í nágrenni við heimili Høibys,“ sagði Eirik Veum, talsmaður öryggislögreglunnar, við AFP-fréttastofuna.

Alexander Greaker, lögmaður Høibys, sagði við norska slúðurblaðið Se og Hør að maðurinn hefði farið inn í húsið og hrint skjólstæðingi hans.

„Høiby var brugðið og honum fannst óþægilegt að maður skyldi koma að honum með þessum hætti á eigin heimili, þar sem hann ætti að geta fundið til öryggis,“ sagði lögmaðurinn.

Samkvæmt Se og Hør voru Hákon konungur og eiginkona hans, Mette-Marit drottning, á eigin heimili, nokkur hundruð metrum frá, þegar atvikið átti sér stað.

Áfrýjun tekin fyrir í febrúar

Høiby, sem er 29 ára, er sonur Mette-Marit frá því áður en hún gekk að eiga Hákon. Hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tvær nauðganir og 32 önnur brot, þar á meðal ofbeldi gegn fyrrverandi maka.

Hann var sýknaður af tveimur öðrum ákæruliðum sem vörðuðu nauðgun.

Høiby hefur afplánað dóminn í stofufangelsi frá því um miðjan júlí á meðan beðið er þess að áfrýjun málsins verði tekin fyrir. Það er fyrirhugað í febrúar á næsta ári.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅