Í grunnskólanum hvöttu stúlkurnar hver aðra til að halda sig fjarri bræðrunum – Nú er er dómurinn fallinn

Pressan

Laugardaginn 7. nóvember 2026 21:00

Oren, Alon og Tal Alexander þóttu varasamir.

Það vakti mikla athygli og var mikið áfall fyrir marga þegar hinir efnuðu og þekktu fasteignasalar Tal og Oren Alexeander voru handteknir ásamt bróður þeirra, Alon Alexander, 2023.

Tal og Oren Alexander höfðu selt lúxusíbúðir til stjarna á borð við Lindsay Lohan, Kim Kardashian og Kanye West. Nú voru þeir allir í haldi lögreglunnar, grunaðir um nauðganir og mansal.

Á skólaárum þeirra hvöttu skólasystur þeirra hver aðra til að halda sig fjarri bræðrunum. Það er sagt hafa verið vel varðveitt leyndarmál í vinahópi þeirra að þeir byrluðu stúlkum ólyfjan og nauðguðu þeim. En engin sagði neitt og þetta hélt svona áfram árum saman.

Bræðurnir voru nýlega dæmdir í 30 ára fangelsi hver af alríkisdómstól í New York.

En hvernig gat það gerst að þrír bræður gátu stundað nauðganir og önnur kynferðisafbrot áratugum saman án þess að vera látnir sæta ábyrgð.

Lokkuðu og byrluðu konum og stúlkum

Í ákærunni kom fram að bræðurnir hafi notað fjárhagslega getu sína, áhrif og stöðu í samfélaginu til að notfæra sér ungar konur og stúlkur.

Oft gerðu þeir þetta með því að lokka þær á staði þar sem þær voru meira eða minna sambandslausar við umheiminn. Þeir notuðu meðal annars samfélagsmiðla, stefnumótaöpp, samkvæmisskipuleggjendur eða hittu konurnar sjálfir og réðu til ýmissa viðburða.

Fórnarlömbunum var lofað lúxus upplifunum, ferðalögum og hóteldvöl.

Síðan voru þeim byrluð „sljóvgandi og svefnframkallandi lyf“ og síðan beittar hrottalegu kynferðisofbeldi.

Í sumum tilfellum héldu þeir konunum föstum á meðan á ofbeldinu stóð og hunsuðu öskur þeirra og ítrekaðar beiðnir þeirra um að þeir hættu að beita þær ofbeldi.

Stundum var það einn bróðir sem braut á konunum en stundum allir þrír.

Oftar en einu sinni tóku aðrir en bræðurnir einnig þátt í ofbeldinu að því að fram kemur í dómnum.

Í dómnum kemur fram að mörg fórnarlambanna voru á barnsaldri þegar þær voru beittar ofbeldi og margar þeirra báru vitni fyrir dómi og skýrðu frá þeim varanlegu örum sem bræðurnir skildu eftir á sál þeirra og líkama.

Minnst 70 fórnarlömb

Tólf konur báru vitni gegn bræðrunum fyrir dómi en saksóknarar segja að fórnarlömb þeirra hafi verið minnst 70 á síðustu tveimur áratugum.

Saksóknarar telja þó að brot bræðranna nái mun lengra aftur en það.

Miami New Times skýrði frá kæru sem var lögð fram 2003 á hendur Alon og Oren Alexander þar sem þeir voru sakaðir um að hafa tekið þátt í hópnauðgun á 14 ára stúlku sem gekk í sama skóla og þeir. Ákæra var aldrei gefin út í málinu.

Mörg fyrrum skólasystkini þeirra hafa sagt að nemendur hafa varað hver aðra við bræðrunum á skólaárum þeirra. Stúlkum var til dæmis ráðlagt að taka ekki við drykkjum af þeim.

Bræðurnir notuðu samfélagsstöðu sína í fasteignasölugeiranum og góða fjárhagsstöðu til að þvinga fórnarlömbin til þagnar.

Sumum fórnarlömbum var einnig hótað. BBC segir að eitt vitnið hafi sagt fyrir dómi að þegar hún hafi ætlað að segja að bræðurnir hefðu nauðgað henni, hefði Tal Alexander hótað henni að hann vissi hvar systir hennar starfaði.

Bræðurnir héldu allir fram sakleysi sínu fyrir dómi og sögðust einfaldlega hafa verið menn sem lögðu mikið á sig í lífinu. Tal Alexander játaði að hann sæi hvernig hegðun hans hefði getað „sært tilfinningar fólks“.

Þeir sögðust allir hafa gjörbreytt lífi sínu og væru nú fjölskyldufeður.

En þetta dugði ekki til að sannfæra dómarann sem dæmdi hvern og einn í 30 ára fangelsi.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅