Sigurganga Freys heldur áfram
Lærisveinar Freys Alexanderssonar unnu enn einn sigurinn þegar Rosenborg lagði botnlið Start að velli, 4:1, á heimavelli í 26. umferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.
Rosenborg hefur verið óstöðvandi undanfarið en liðið er taplaust í síðustu sjö deildarleikjum sínum og hefur unnið níu af síðustu ellefu.
Rosenborg situr nú í þriðja sæti deildarinnar með 46 stig eftir 26 leiki og er í harðri baráttu um evrópusæti. Þegar Freyr tók við liðinu var það með níu stig eftir ellefu leiki og sat í næstneðsta sæti deildarinnar.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗