Þessi hlutu styrk úr Myndlistarsjóði
Logi Einarsson, Menningar-, nýsköpunar-, og háskólaráðherra, og Sigrún Inga Hrólfsdóttir, formaður myndlistarráðs, afhentu myndlistarfólki styrki úr myndlistarsjóði í gær. Alls var 32 milljónum króna úthlutað til 48 verkefna.
Í tilkynningu kemur fram að Myndlistarsjóði bárust 158 umsóknir og sótt var um styrki fyrir 199 milljónir króna.
Veittir voru styrkir í tveimur flokkum:
- Útgáfu- rannsóknar- og aðrir styrkir (44 umsóknir bárust og 13 verkefni hlutu styrk fyrir alls kr. 8.600.000)
- Sýningastyrkir (114 umsóknir bárust og 35 verkefni hlutu styrk fyrir alls kr. 23.400.000)
Hæstu styrkina í flokknum Útgáfu- rannsóknar- og aðrir styrkir hlutu:
- Agnieszka Eva Sosnowska en hún fékk 1.400.000 kr. fyrir útgáfu bókarinnar Stattu bein, stattu beinni
- Ásdís Mercedes Spanó en hún fékk 1.000.000 kr. fyrir útgáfu bókarinnar Suðurgata 7 – 50 ára
Hæstu styrkina í flokknum Sýningarstyrkir hlutu:
- Nýlistasafnið sem fékk 2.000.000 kr. fyrir Vetrardagskrá Nýlistasafnsins: Þrjár sýningar
- Norræna húsið sem fékk 1.500.000 kr. fyrir samsýningunni Southnord
- Listasafn Ísafjarðar hlaut 1.500.000 kr. fyrir sýningum í Listasafni Ísafjarðar
- Kling & Bang hlaut 1.500.000 kr. fyrir samsýninguna Að halda, að gefa, að þiggja
- Hótel Djúpavík fær 1.200.000 kr. fyrir samsýninguna The Factory 2027 í Verksmiðjunni á Djúpavík
- Listasafn Árnesinga fær 1.000.000 kr. fyrir samsýninguna Please Repeat After Me
- Egill Sæbjörnsson fær 1.000.000 kr. fyrir ýmsar sýningar 2027
Listann yfir styrkþega má finna í heild sinni hér.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
