Sigurganga Freys heldur áfram

Freyr Alexandersson stýrir Rosenborg

Freyr Alexandersson stýrir Rosenborg Ljósmynd/Rosenborg

Lærisveinar Freys Alexanderssonar unnu enn einn sigurinn þegar Rosenborg lagði botnlið Start að velli, 4:1, á heimavelli í 26. umferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.

Rosenborg hefur verið óstöðvandi undanfarið en liðið er taplaust í síðustu sjö deildarleikjum sínum og hefur unnið níu af síðustu ellefu.

Rosenborg situr nú í þriðja sæti deildarinnar með 46 stig eftir 26 leiki og er í harðri baráttu um evrópusæti. Þegar Freyr tók við liðinu var það með níu stig eftir ellefu leiki og sat í næstneðsta sæti deildarinnar. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅