Dóttir Pútíns ætlar að „plata guð“
Pressan
Laugardaginn 7. nóvember 2026 20:30
Maria Vorontsova er talin vera elsta dóttir Vladimir Pútín
Maria Vorontsova, sem er dóttir Vladímír Pútíns, hefur í hyggju að „plata guð“ með nýju lyfi sem á að veita fólki lengra líf. Lyfið er sagt vinna gegn öldrunarferlinu.
Vorontsova er 41 árs innkirtlalæknir. Hún sagði nýlega að vonir standi til að vísindamönnum takist að búa til leiðbeiningar um hvernig fólk getur „platað guð eða náttúruna“ með því að lifa lengur en ætti að vera hægt.
Marga grunar að það sé heilsufar föður hennar sem hefur verið aðalhvatinn fyrir hana til að finna lausn á dauðleika okkar mannanna.
Vorontsova ræddi þetta þegar ný rannsóknarstofa var tekin í gagnið í Moskvu. Hún sagði að fólk verði að leggja áherslu á heilsu sína allt frá vöggu til grafar. Þetta þýði að fólk þurfi að temja sér góðar venjur allt frá æsku, til dæmis að fylgja hollu mataræði, hreyfa sig og fara reglulega í heilsufarsskoðun.
Hún sagði að kenna eigi þetta í menntakerfinu til að tryggja að næsta kynslóð Rússa geti lifað lengur en forfeðurnir.
Í umfjöllun Vedomosti um málið segir að Vorontsova hafi sagt að ef fólk fylgi þessum ráðum, þá hjálpi það því að ná náttúrulega mögulegum aldri sem sé 85 til 90 ára.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗