Bitin af flækingshundi í rómantískri Balíferð

Romeo Beckham og Kim Turnbull fögnuðu tveggja ára sambandsafmæli með rómantískri ferð til Balí. Skjáskot/Instagram

Romeo Beckham og kærasta hans Kim Turnbull fögnuðu tveggja ára sambandsafmæli á Balí. Ferðin tók þó óvænta stefnu þegar Turnbull þurfti að fá bólusetningu gegn hundaæði eftir hundsbit.

Plötusnúðurinn Kim Turnbull, kærasta Romeo Beckham, hefur deilt myndum úr rómantískri ferð þeirra til indónesísku eyjarinnar Balí. Þar nutu þau lífsins í tilefni af tveggja ára sambandsafmæli sínu, en ferðin var þó ekki alveg áfallalaus.

Turnbull, sem er 24 ára, var bitin af flækingshundi sem hún hafði gefið að borða. Hún greindi frá atvikinu á Instagram og sagðist þrátt fyrir bitið hafa fært hundinum meira að borða.

„Þið megið trúa því að ég fór aftur og gaf honum að borða eftir að hann beit mig. Nú er hann kominn aftur. Er hann að biðjast afsökunar eða vill hann meiri mat?“ skrifaði hún.

Eftir að vinir og fjölskylda höfðu lýst áhyggjum af því að hún gæti smitast af hundaæði leitaði Turnbull sér aðstoðar og fékk bólusetningu.

Morgunverður í sundlaug 

Þrátt fyrir óhappið gáfust fjölmörg tækifæri til að njóta þess sem eyjan hafði upp á að bjóða. Á myndunum sést Turnbull meðal annars gæða sér á morgunverði sem borinn var fram á fljótandi bakka í sundlaug með útsýni yfir hafið.

Parið fór einnig í gönguferðir meðfram á og sótti matreiðslunámskeið undir berum himni. Á einni myndinni sést Beckham undirbúa hráefni með kokki en á annarri situr hann á kletti við ána.

Sambandsafmælinu var meðal annars fagnað með eftirrétti á diski sem á hafði verið skrifuð hamingjuósk með súkkulaðisósu.

Fögnuðu tveggja ára sambandi

Bæði birtu þau ástarjátningar á Instagram í tilefni af tímamótunum.

„Tvö ár af ást til þín. Elska þig mikið, Kimmy T,“ skrifaði Beckham við myndir úr ferðinni. Turnbull tók í sama streng og lýsti síðustu tveimur árum sem tíma ástar og ævintýra.

Victoria Beckham, móðir Romeos, sýndi sambandinu stuðning með rauðum hjörtum í athugasemdum og amma hans, Sandra Beckham, óskaði parinu einnig til hamingju.

 Daily Mail

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅