Árásarmaðurinn „heillaður af öfga-hægri hugmyndafræði“

Lögreglumaður nærri torginu þar sem skotárásin átti sér stað.

Lögreglumaður nærri torginu þar sem skotárásin átti sér stað. AFP/Wijtek Radwanski

Árásamaðurinn, sem skaut að minnsta kosti sex manns til bana í Kraká í Póllandi í dag, aðhylltist hugmyndafræði öfga-hægrisins. 

Þetta segir innviðaráðherra landsins, Marcin Kierwinski.

„Allt bendir til þess að árásarmaðurinn hafi haft mjög, mjög róttækar skoðanir. Fjöldi vopna fannst í bílnum sem hann ók,“ sagði ráðherrann.

„Allt bendir til þess að hann hafi verið heillaður af öfga-hægri hugmyndafræði,“ bætti hann við.

Torgið þar sem skotárásin átti sér stað í Kraká.

Torgið þar sem skotárásin átti sér stað í Kraká. AFP/Piotr Baran

Lögreglumaður þungt haldinn

Árásarmaðurinn ók bíl sínum inn á fjölfarið torg í miðborg Kraká og hóf skothríð.

Lögregla skiptist á skotum við manninn sem særðist í átökunum rétt eins og tveir lögreglumenn.

Annar þeirra er sagður þungt haldinn. Fjöldi fólks slasaðist í árásinni þar sem fjórar konu og tveir karlmenn létu lífið. 

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅