Segir ráðuneytið hafa lagt til frestun fundarins
Í nóvember 2025 fékk stjórn Landsvirkjunar ítarlega kynningu á reglum um samskipti Landsvirkjunar við eigandann. Samsett mynd
Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður Landsvirkjunar segir að fjármálaráðuneytið hafi lagt til að fundi sem Hörður Arnarson, þáverandi forstjóri fyrirtækisins, hafði óskað eftir með ráðherra yrði frestað.
Þetta kemur fram í svari Brynju við fyrirspurn mbl.is en hún segir ráðuneytið hafa lagt til að halda upplýsingafund með stjórninni fyrst.
Hörður hefur haldið því fram að Brynju Baldursdóttur stjórnarformaður Landsvirkjunar hafi óskað eftir breytingu á fyrirhuguðum fundi þeirra. Nærveru forstjórans væri ekki óskað og ráðherrann myndi þess í stað funda með stjórninni. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefur hins vegar hafnað þeirra lýsingu og sagt um tvo aðskilda fundi að ræða.
Ítarleg kynning um samskipti við eigandann
„Ég lét stjórnina og forstjóra vita af þessu í tölvupósti 22. desember. Í póstinum kom fram að fundinum með forstjóra yrði frestað,“ segir Brynja.
Í nóvember 2025 fékk stjórn Landsvirkjunar ítarlega kynningu á reglum um samskipti Landsvirkjunar við eigandann.
„Á fundinum með ráðherra í janúar var rætt um samskipti eiganda og stjórnar og um að formfesta upplýsingafundi. Daginn eftir sendi ég forstjóra póst um fundinn og við ákváðum að fara yfir fundarpunktana á stöðufundi okkar 9. janúar 2026,“ segir Brynja.
Fært til bókar á stjórnarfundi í janúar
Hún segir fundinn með ráðherra og efni hans hafa verið fært til bókar á stjórnarfundi 23. janúar 2026, ásamt fundargerð fundarins, að forstjóra viðstöddum.
„Á sama fundi óskaði stjórnin eftir að hafin yrði endurskoðun á starfsreglum stjórnar. Stjórnin taldi málið þar með komið í farveg. Forstjóri sat síðan með mér fundi í ráðuneytinu í febrúar og apríl 2026,“ segir hún.
„Stjórnin stendur við það mat að samskiptin við ráðuneytið hafi verið innan þeirra reglna sem um þau gilda,“ bætir hún við að lokum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗