Elvar stigahæstur í naumum sigri
Elvar Már Friðriksson var stigahæstur í naumum 82:80-sigri Neptunas á Taurage í efstu deild Litháens í körfubolta í dag.
Neptunas voru tólf stigum undir eftir þriðja leikhluta en tóku yfir leikinn í fjórða leikhluta þar sem Elvar skoraði 10 stig og sigldi sigrinum heim fyrir heimamenn.
Elvar átti frábæran leik en hann skoraði 22 stig og gaf fimm stoðsendingar ásamt því að stela fjórum boltum.
Neptunas komst upp í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum en liðið hefur unnið fimm af fyrstu níu leikjum tímabilsins. Andstæðingar þeirra í Taurage sitja hins vegar í næstneðsta sæti deildarinnar.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗