Grátlegur endir hjá Sveindísi

Sveindís Jane Jónsdóttir er úr leik.

Sveindís Jane Jónsdóttir er úr leik. mbl.is/Karítas

Sveindís Jane Jónsdóttir og liðsfélagar hennar í Angel City eru úr leik í úrslitakeppninni í efstu deild bandaríska fótboltans.

Angel mátti þola tap á útivelli gegn Kansas City í átta liða úrslitunum í kvöld, 1:0, í framlengdum leik og er tímabili liðsins því lokið.

Sveindís lék allan leikinn með Angel og fékk úrvalsfæri á 106. mínútu þegar hún slapp í gegn, lék á markvörð Kansas en setti boltann fram hjá.

Sveindís skoraði tíu mörk í deildarkeppninni á tímabilinu og setti félagsmet hjá Angel City í markaskorun á einni leiktíð.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅