Enn eitt tapið hjá City - United í fallsæti
Nottingham Forest sigraði Manchester City, 3:1, á heimavelli í 10. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld.
Þrátt fyrir tapið er City í öðru sæti með 21 stig. Forest er í 16. sæti með níui.
Jair Cunha skoraði fyrsta markið strax á 6. mínútu og tólf mínútum síðar bætti Liam Delap við öðru marki.
Var staðan í hálfleik 2:0 og City langt frá sínu besta.
Rayan Cherki minnkaði muninn á 52. mínútu og City sótti mikið í kjölfarið.
Forest stóð það hins vegar af sér og Delap skoraði sitt annað mark og þriðja mark Forest á 73. mínútu og þar við sat.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗