Ber fyrir sig neyðarvörn í Breiðholtsmálinu

Átökin áttu sér stað við Hraunberg í Breiðholti. Einn lést aðfaranótt 1. nóvember. mbl.is/Anton Brink

Maður á fertugsaldri, sem handtekinn var af lögreglu grunaður um manndráp, mun bera fyrir sig neyðarvörn í málinu. Honum hefur verið sleppt úr einangrun. 

Elimar Hauksson, lögmaður mannsins, staðfestir þetta við mbl.is. Skjólstæðingur hans er 34 ára gamall.

Hann hefur verið látinn laus úr einangrun en er enn í haldi lögreglu. Gæsluvarðhaldskrafa yfir honum rennur út á mánudaginn, 9. nóvember. 

Maðurinn var handtekinn ásamt föður sínum eftir að til átaka kom aðfaranótt 1. nóvember sl. í Efra-Breiðholti þar sem einn lét lífið. Faðirinn, sem er 59 ára, var látinn laus úr haldi lögreglu í gær. Feðgarnir lentu í átökum við tvo menn. Einn af þeim lést í átökunum. Hann var 34 ára gamall.

Elimar Hauksson, verjandi mannsins.

Elimar Hauksson, verjandi mannsins. mbl.is/Karítas

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅