Einkaspæjari McCann-fjölskyldunnar með allt aðra kenningu um örlög Madeleine – „Ég þarf bara nafn“
Þrátt fyrir að tæpir tveir áratugir séu síðan hin þriggja ára Madeileine McCann hvarf sporlaust úr sumarleyfisíbúð í Algarve í Portúgal þá neitar einn helsti rannsakandi málsins að láta málið fjara út.
Þetta er spænski einkaspæjarinn Julián Peribanez sem Kate og Gerry McCann (foreldrar Madeleine) réðu til starfa 2008 til að leita að Madeileine. Peribanez setti nýlega fram innilegt ákall til almennings um mikilvægar upplýsingar í tengslum við málið. The Express skýrir frá þessu.
Lögreglan í Þýskalandi og Bretlandi hefur á síðustu árum beint sjónum sínum að þýska kynferðisbrotamanninum Christian Brueckner en í hvorugu landinu hefur verið hægt að gefa út ákæru á hendur honum.
Peribanez vinnur út frá allt öðru sjónarhorni því hann er sannfærður um að Madeileine hafi verið numin á brott af austur-evrópskum glæpasamtökum sem stunduðu mansal í Algarve á þessum tíma.
„Það eina sem ég þarf er nafn. Segið mér nafn og ég mun finna viðkomandi,“ sagði Peribanez.
Þýska lögreglan hefur um langa hríð talið að Madeileine sé ekki lengur á lífi en Peribanez telur ekki útilokað að hún sé á lífi. Fyrir hann er rannsóknin ævilöng köllun sem hann ætlar ekki að hætta fyrr en McCann-fjölskyldan fær að vita sannleikann.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗