Hvetja Íslendinga til að láta vita af sér
Erlent | mbl | 7.11.2026 | 19:13
Íslendingar í Kraká eru hvattir til þess að láta aðstandendur sína vita af sér að gera grein fyrir sér á samfélagsmiðlum vegna skotárásar í borginni fyrr í dag þar sem sex manns létust.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.
Þeir sem þurfa á aðstoð að halda eru hvattir til þess að hafa samband við neyðarnúmer borgaraþjónustunnar í síma +354 545-0-112.
Þá er Íslendingum á vettvangi bent á að virða lokanir og tilmæli yfirvalda og fylgjast með staðbundnum fjölmiðlum.
Fjórar konur og tveir karlar eru látin eftir skotárásina en árásarmaðurinn skiptist á skotum við lögreglumenn áður en hann var handtekinn. Hann er nú í haldi lögreglu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗