Alcoa hafi fagnað brotthvarfi forstjóra Landsvirkjunar

Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi ráðherra stjórnarmaður í Landsvirkjun, segist fullviss um að mikil gleði hafi ríkt í herbúðum bandaríska álfyrirtækisins Alcoa þegar Hörður Arnarson lét af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Fram undan séu einhverjir mikilvægustu orkusamningar sem íslenska þjóðin hafi staðið frammi fyrir og brotthvarf Harðar og fjármálastjóra fyrirtækisins geti haft alvarleg áhrif á samningsstöðu Landsvirkjunar.

Þetta kemur fram í Spursmálum þar sem Álfheiður og Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi fjármálaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, ræða þá stöðu sem komin er upp hjá Landsvirkjun eftir brotthvarf Harðar og ágreining hans við stjórn fyrirtækisins.

Álfheiður, sem sat samtals í 14 ár í stjórn Landsvirkjunar, segir að endursamningar við Alcoa Fjarðaál séu eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar um þessar mundir.

„Þetta er að mínu viti eitthvert stærsta hagsmunamál íslensku þjóðarinnar í dag,“ segir Álfheiður.

Alcoa Fjarðarál er stærsti kaupandi raforku á Íslandi. Nemur raforkunotkun þess 26% af allri rafmagnsframleiðslu landsins og 36% af orkuframleiðslu Landsvirkjunar. mbl.is/Sigurður Bogi

Þriðjungur orkunnar en mun minna af tekjunum

Hún bendir á að Landsvirkjun selji um þriðjung allrar raforku sinnar til Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði. Tekjurnar af þeirri sölu séu hins vegar hlutfallslega mun minni.

„Landsvirkjun selur þriðjung af sinni orku til þessa eina fyrirtækis og við skulum ekkert fara í grafgötur með það að þetta fyrirtæki greiðir ekki þriðjung af þeim tekjum sem Landsvirkjun hefur fyrir orkusöluna, heldur miklu lægri fjárhæðir.“

Álfheiður segir að núverandi samningar við Alcoa séu til 40 ára en á næsta ári opnist sérstakur gluggi til að semja um raforkusölu til næstu 20 ára. Undirbúningur þessara samningaviðræðna hefur staðið lengi yfir innan Landsvirkjunar og þar hafa Hörður og fjármálastjóri fyrirtækisins gegnt lykilhlutverki.

Báðir eru nú horfnir á braut þegar kemur að þessum mikilvægu samningaviðræðum.

„Það er búið að vera að undirbúa það í Landsvirkjun í langan tíma og það hefur náttúrulega hvílt á herðum forstjóra og fjármálastjóra og fjármáladeildarinnar,“ segir Álfheiður.

„Mikil gleði í herbúðum Alcoa“

Hún dregur ekki dul á þá skoðun sína að brotthvarf Harðar sé álfyrirtækinu í hag.

„Ég óttast, eða ég er bara alveg viss um það, að það var mikil gleði í herbúðum Alcoa þegar Hörður sté frá borði.“

Álfheiður ítrekar þessa afstöðu sína og segir Hörð hafa sýnt mikla festu í samningaviðræðum við alþjóðleg álfyrirtæki.

„Ég er bara alveg viss um það vegna þess að hann hefur verið mjög harður í horn að taka gagnvart þessum alþjóðlegu álrisum og er þekktur fyrir það á þeim vettvangi.“

Hörður tók við forstjórastarfi Landsvirkjunar árið 2009. Á þeim tíma er fyrirtækið mjög skuldsett, meðal annars vegna umfangsmikilla virkjunarframkvæmda. Undir hans stjórn var ráðist í endursamninga við stórnotendur raforku, fjárhagsstaða fyrirtækisins styrkt og skuldir greiddar niður.

Álfheiður segir að á þessum tíma hafi arðgreiðslur og skattgreiðslur Landsvirkjunar til ríkisins numið samtals um 250 milljörðum króna.

Reynsla sem verður ekki auðveldlega bætt

Sigurður Ingi tekur undir áhyggjur Álfheiðar af stöðunni. Hann segir að í upphafi hafi raforkusamningar við stórnotendur verið gerðir til að laða að öflug iðnfyrirtæki og tryggja uppbyggingu atvinnulífsins.

Þegar fyrirtækin hafi fest sig í sessi sé hins vegar eðlilegt að endurskoða samningskjörin og tryggja Landsvirkjun hagstæðara raforkuverð.

„Núna liggur fyrir að stærsti samningurinn við Alcoa Fjarðaál, hann er næstur. Maðurinn sem hefur farið í gegnum þetta, þennan feril til 17 ára, hann er farinn,“ segir Sigurður Ingi.

Hann leggur áherslu á að fjármálastjórinn sé einnig hættur og að afleiðingar þeirrar atburðarásar sem leiðir til brotthvarfs stjórnendanna geti reynst mun alvarlegri en menn geri sér grein fyrir.

Að hans mati snýst málið því ekki eingöngu um samskipti stjórnar og forstjóra eða möguleg pólitísk afskipti fjármálaráðherra. Það varðar einnig beina fjárhagslega hagsmuni íslenska ríkisins og getu Landsvirkjunar til að gæta þeirra.

Tvö erfið verkefni fram undan

Álfheiður bendir á að stjórn Landsvirkjunar standi nú frammi fyrir tveimur afar vandasömum verkefnum.

„Ráða nýjan forstjóra og semja við Alcoa Fjarðaál. Án Harðar og án fjármálastjórans.“

Sigurður Ingi segir að það verði ekki auðvelt að ráða nýjan forstjóra við þær aðstæður sem nú ríkja.

„Ég notaði nú einhver stór orð í þinginu í gær og ég sagði bara: Guð hjálpi þeim sem eru að fara í þetta ráðningarferli við þessar aðstæður.“

Hann segir nauðsynlegt að endurreisa traust til stjórnar fyrirtækisins og upplýsa að fullu hvað hafi átt sér stað í samskiptum hennar við fjármálaráðuneytið.

„Allt er hægt en það þarf að vinna í því að byggja upp traust aftur og eina leiðin til að byggja upp traust það er að leggja öll spil á borðið og sýna nákvæmlega hvað hefur átt sér stað og draga ekkert undan.“

Af orðum þeirra beggja má ráða að þau telji mikla fjárhagslega hagsmuni í húfi, ekki síst vegna þess að samningaviðræðurnar við Alcoa fara fram á sama tíma og Landsvirkjun þarf að endurreisa traust og koma nýrri yfirstjórn á laggirnar.

Viðtalið við Álfheiði og Sigurð Inga má sjá og heyra í heild sinni í spilaranum hér að neðan:

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅