Hvetja Íslendinga til að láta vita af sér

Erlent | mbl | 7.11.2026 | 19:13

Lögregla við störf á vettvangi árásarinnar.

Lögregla við störf á vettvangi árásarinnar. AFP

Íslendingar í Kraká eru hvattir til þess að láta aðstandendur sína vita af sér að gera grein fyrir sér á samfélagsmiðlum vegna skotárásar í borginni fyrr í dag þar sem sex manns létust. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 

Þeir sem þurfa á aðstoð að halda eru hvattir til þess að hafa samband við neyðarnúmer borgaraþjónustunnar í síma +354 545-0-112.

Þá er Íslendingum á vettvangi bent á að virða lokanir og tilmæli yfirvalda og fylgjast með staðbundnum fjölmiðlum.

Fjórar konur og tveir karlar eru látin eftir skotárásina en árásarmaðurinn skiptist á skotum við lögreglumenn áður en hann var handtekinn. Hann er nú í haldi lögreglu. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅