Tottenham krefst svara eftir umdeilt atvik
Tottenham hyggst samkvæmt BBC leggja fram formlega kvörtun vegna ákvörðunnar John Brooks að reka Jayden Bogle ekki út af eftir háskalega tæklingu hans á Mathys Tel í Leik Leeds og Tottenham í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta sem fram fór á Elland Road í dag.
Ákvörðunin reyndist afar afdrifarík en það var aðeins á 34. mínútu þegar Bogle steig á hæl Mathys Tel, leikmanns Tottenham með þeim afleiðingum að sá síðarnefndi þurfti að fara af velli.
Atvikið var til skoðunar hjá myndbandsdómurunum í tæpar fjórar mínútur en niðurstaðan var að senda Brooks ekki í skjáinn og slapp Bogle því við refsingu.
Félagið telur að Bogle hefði átt að fá rautt spjald og hyggst félagið óska eftir skýringum frá dómarayfirvöldum á ákvörðuninni
Roberto De Zerbi, knattspyrnustjóri Tottenham, óttast að Tel hafi meiðst illa en vildi ekki fullyrða hvort Bogle hefði átt að fá rautt spjald.
„Ég veit ekki hvort þetta hafi verið rautt spjald eða ekki. En gula spjaldið sem Pedro Porro fékk sýnir að samræmið í dómgæslunni var ekki nógu gott,“ sagði De Zerbi á blaðamannafundi eftir leik.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗