„Barnið þarf bara að fá að gráta“

Tíminn á milli klukkan fimm og sjö síðdegis getur reynst mörgum barnafjölskyldum erfiður. Börnin koma þreytt heim úr leikskólanum eftir langan dag á sama tíma og foreldrar þurfa að sinna eldamennsku, heimilisstörfum og öðrum skyldum.

Jasmín Guðrún Abu Libdeh, hlaðvarpsstjórnandi og foreldrafræðari, segir mikilvægt að foreldrar geri sér grein fyrir að börn þurfi oft að fá útrás fyrir uppsafnaðar tilfinningar eftir leikskóladaginn. 

„Ef við tölum um bræðiskastið, það gerir það bærilega ef börnin fá bara að klára það.“ 

Hún segir algengt að foreldrar reyni að stöðva grátköst með því að bjóða börnunum eitthvað spennandi, til dæmis ávaxtaskvísu, ís eða annað góðgæti, þegar þau þurfi í raun aðeins að fá að tjá tilfinningar sínar og fá útrás fyrir þeim.

„Barnið vill ekki neitt af því það þarf bara að fá að gráta,“ segir hún og bendir á að með því að dreifa athygli barnsins sé hætta á að verið sé að fresta tilfinningaútrásinni og lengja þar með ferlið.

Ráðleggur hún foreldrum jafnframt að stilla væntingum sínum í hóf þegar þeir sækja börnin í leikskólann og gera ekki ráð fyrir að þau séu alltaf hress og tilbúin í frekari dagskrá.

„Það er ógeðslega leiðinlegt að vera foreldri og vera ógeðslega spennt, það er kannski föstudagur og þú ætlar að fara í búðina og við ætlum að gera svolítið sérstakt. Ég er í góðu skapi, ég átti góðan vinnudag og svo er barnið bara í ömurlegu skapi,“ lýsir Jasmín.

„Þannig ég held að við þurfum bara að leyfa þeim aðeins og vera til staðar í þennan smá tíma.“

Jasmín Guðrún er gestur Ásthildar Hannesdóttur í Dagmálum. Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að nálgast viðtalið í heild sinni:

Foreldrar ættu að stilla væntingum sínum í hóf þegar börnin er sótt í leikskólann. Samsett mynd/Pexels/Pavel Danilyuke/Gustavo Fring

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅