Segist hafa orðið manninum að bana í sjálfsvörn

Maðurinn sem er grunaður um að hafa orðið öðrum manni að bana í Breiðholti um síðustu helgi ber við sjálfsvörn.

RÚV greinir frá þessu og ræðir við Elimar Hauksson lögmann mannsins sem segist reikna með að farið verði á framlengingu gæsluvarðhalds yfir manninum en hann muni andmæla því á grundvelli þess að um nauðvörn hafi verið að ræða.

Maðurinn var ásamt föður sínum úrskurðaður í gæsluvarðhald en faðirinn hefur verið látinn laus. Til átaka kom milli þeirra og tveggja manna utan dyra á horni Hraunbergs og Austurbergs í Breiðholti, en talið er að fjórmenningarnir hafi skömmu áður verið saman á sportbarnum Álfinum, í Hólagerði. Sonurinn stakk báða mennina og lést annar þeirra en hinn særðist illa en er ekki í lífshættu.

Fram kemur í frétt RÚV að atburðarásin hafi náðst á upptöku öryggismyndavélar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅