Bjarni heyrði skothljóðin í Kraká: Sex létu lífið
Bjarni Vestmann, sendifulltrúi við fastanefnd Íslands hjá Atlantshafsbandalaginu í Brussel, var staddur í Kraká í Póllandi í fríi með eiginkonu sinni þegar hann heyrði skothljóð.
Árásarmaður hafði þá ekið inn á torgið í miðborginni og hafið þar skothríð.
„Það er manneskja sem er myrt þarna 50 metrum frá okkur,“ segir Bjarni sem sat að snæðingi með eiginkonu sinni á útisvæði veitingastaðar við sama torg og árásin átti sér stað. Hann ræddi við mbl.is.
Hjónin sakaði ekki í árásinni en þeim er brugðið eftir upplifunina.
Sex manns létust hið minnsta og um tólf í árásinni í dag, fjórar konur og tveir karlmenn.
Myndband af torginu eftir atburðarásina má sjá í færslu Bjarna hér að neðan.
Hélt að hljóðin væru vegna flugelda
Bjarni segist fyrst hafa haldið að verið væri að skjóta upp flugeldum. Fljótt hafi þó komið í ljós að svo var ekki.
Hann hafi áttað sig á því hvað væri að gerast þegar fólk óð inn á veitingastaðinu við torgið til að komast í skjól frá átökunum.
Bjarni segir skotmanninn meðal annars hafa látið byssuskotin dynja á tískufataversluninni Zöru við torgið þar sem fólk hafi slasast.
Manneskja hafi látið lífið fyrir utan verslunina sem er í um 150 metra fjarlægð frá veitingastaðnum þar sem Bjarni og eiginkona hans voru þegar atburðarásin hófst.
View of the storefront on Grodzka Street on which a suspect fired at in the historic center of Krakow, Poland, on November 7, 2026 where a gunman opened fire killing five people wounding around a dozen. Police said the shots had been fired in the afternoon from a car that rammed into the centre, before officers shot the perpetrator. (Photo by Bartosz SIEDLIK / AFP) AFP
Tveir lögreglumenn særðir
Árásarmaðurinn skiptist á skotum við lögregluna og varð fyrir skoti sjálfur. Hann var handtekinn og fluttur á sjúkrahús en er nú í haldi lögreglu.
Eins Bjarni bendir á var lögreglumaður illa haldinn eftir átökin við árásarmanninn. Samkvæmt BBC eru tveir lögreglumenn særðir og einn í lífshættu eftir átökin.
Mikill viðbúnaður var á staðnum eins og gefur að skilja. Sjúkraþyrla var kölluð á staðinn.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


