Logi og félagar bundu enda á taphrinuna
Logi Tómasson bar fyrirliðabandið í dag þegar Samsunspor vann langþráðan 1:0-sigur á Konyaspor og nældi sér í sín fyrstu stig síðan í ágúst í efstu deild Tyrklands í knattspyrnu.
Fyrir leik dagsins höfðu Logi og félagar tapað átta leikjum í röð og ekki náð sér í stig síðan í ágúst eftir fína byrjun á tímabilinu en liðið situr í næstneðsta sæti með sjö stig eftir ellefu leiki.
Samsunspor var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og á 39. mínútu skoraði Malímaðurinn Antoine Sekongo eina mark leiksins. Konyaspor tókst ekki að jafna metin þrátt fyrir nokkrar tilraunir og niðurstaðan því afar mikilvægur heimasigur Samsunspor.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗