Neyðarástandi lýst yfir á einni Kanaríeyja

Nokkur þúsund manns hafa komið til Kanaríeyja á undanförnum vikum og margir þeirra stigið á land á El Hierro. AFP

Yfirvöld á El Hierro, einni Kanaríeyja, lýstu yfir neyðarástandi í dag vegna mikillar fjölgunar fólks sem kemur sjóleiðina til eyjarinnar. Þau kalla eftir aðstoð spænsku ríkisstjórnarinnar til að takast á við stöðuna.

„Við höfum miklar áhyggjur af þessari miklu fjölgun,“ sagði Alpidio Armas, forseti eyjaráðs El Hierro, í spænsku sjónvarpi.

„Það er einmitt þess vegna sem við höfum lýst yfir neyðarástandi, til að tryggja ramma um samstarf við yfirvöld á æðri stjórnsýslustigum.“

Nokkur þúsund manns hafa komið til Kanaríeyja á undanförnum vikum og margir þeirra stigið á land á El Hierro. Samkvæmt upplýsingum yfirvalda á eyjunni hafa rúmlega 3.300 manns komið þangað með um 30 bátum frá byrjun nóvember.

Yfirvöld leita nú að tímabundnu húsnæði fyrir fólkið. Armas sagði jafnframt að aðstæður á sjúkrahúsi eyjarinnar væru orðnar slæmar.

Óveður gæti aukið hættuna

Farandfólki sem kemur sjóleiðina til Kanaríeyja fjölgar yfirleitt á þessum árstíma vegna hagstæðra siglingaskilyrða.

Yfirvöld á eyjunni vöruðu þó við því að óveður, sem spáð væri aðfaranótt sunnudags, gæti gert ferðina hættulegri fyrir fólk sem þegar væri á hafi úti.

Tveir fundust látnir í báti sem reyndi að komast til Kanaríeyja fyrr í vikunni. Þá er talið að fimm til viðbótar hafi látist á leiðinni, samkvæmt frásögnum þeirra sem lifðu ferðina af.

Færri komur en í fyrra

Metfjöldi farandfólks kom til Kanaríeyja árið 2024, þegar rúmlega 46.000 manns komu þangað. Í kjölfarið dró verulega úr komum fólks án tilskilinna leyfa, einkum vegna hertrar gæslu og aukins samstarfs við uppruna- og viðkomulönd þess.

Samkvæmt tölum spænska innanríkisráðuneytisins komu 13.327 manns sjóleiðina til Kanaríeyja án tilskilinna leyfa frá 1. janúar til 31. október í ár. Það er 5,5 prósenta fækkun frá sama tímabili í fyrra.

Lögreglan í Senegal greindi frá því á laugardag að hún hefði daginn áður stöðvað för 142 einstaklinga án tilskilinna skilríkja sem hugðust komast til Kanaríeyja. Meðal þeirra voru konur og ung börn.

Fólkið var um borð í báti undan strönd Dakar. Meðal þeirra sem voru stöðvaðir voru 40 frá Senegal, 93 frá Gambíu, einn frá Gíneu-Bissá, tveir frá Gíneu og tveir frá Nígeríu.

Lengri og hættulegar sjóferðir

Mannréttindasamtökin ADHA hvöttu stjórnvöld í Senegal í lok síðasta mánaðar til að bregðast við því að farandfólk héldi áfram að leggja í hættulegar ferðir til Evrópu.

Tæplega þúsund manns frá Vestur-Afríku komu til Kanaríeyja dagana 22. og 23. október.

Aukið eftirlit undan ströndum Senegal, Máritaníu og Marokkó hefur orðið til þess að fólk leggur upp frá löndum sem liggja sunnar, svo sem Gambíu, Gíneu-Bissá og Gíneu. Það lengir sjóferðirnar, sem þegar eru hættulegar.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅