Vaki aftur í hendur stofnandans
Gunnar Óli Sölvason, nýr forstjóri Vaka, ásamt Hermanni Kristjánssyni, stofnanda og nú aftur eiganda fyrirtækisins. Ljósmynd/Vaki
MSD Animal Health, í eigu Merck & Co, hefur selt frá sér fyrirtækið Vaka fiskeldiskerfi sem það keypti árið 2019 af Pentair Aquatic Eco Systems (PAES).
Pentair hafði þá átt fyrirtækið frá 2016. Kaupandi nú er upphaflegur stofnandi fyrirtækisins, Hermann Kristjánsson.
Í tilkynningu um kaupin kemur fram að hann hafi stofnað Vaka fiskeldiskerfi fyrir um 40 árum.
„Samhliða hafa Vaki og íslenska tæknifyrirtækið Ration undirritað samning um samruna félaganna, með það að markmiði að efla enn frekar tækniþróun og þjónustu við fiskeldisfyrirtæki.“
Fram kemur að rekstur Vaka haldi óbreyttur áfram.
„Gunnar Óli Sölvason verður framkvæmdastjóri Vaka og leiðir teymi þar sem koma saman, auk núverandi starfsmanna félagsins, bæði fyrrverandi stjórnendur Vaka og nýir samstarfsmenn með ferska sýn,“ segir í tilkynningu.
Þá kemur fram að Ration hafi þróað RationFEED, sem nýti tölvusjón og gervigreind til að stýra fóðrun í landeldi og draga úr fóðursóun.
Kerfið sé í notkun hjá landeldisfyrirtækjum á borð við Laxey, First Water og Salmon Evolution.
„Ration var á þessu ári meðal átta fyrirtækja í úrslitum Seafood Innovation Award í Bergen og hlaut sérstaka viðurkenningu fyrir RationFEED í flokki nýsköpunar í fiskeldi á IceFish.“
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗