Stefán Einar gefur ekki tommu eftir vegna röngu myndbirtingarinnar - „Kebabelskandi góða fólkið hafi fyrst og fremst ógurlegar áhyggjur“
Ritstjórn DV
Laugardaginn 7. nóvember 2026 18:36
Stefán Einar Stefánsson. Skjáskot af Brotkasti.
Stefán Einar Stefánsson blaðamaður og þáttastjórnandi hjá Morgunblaðinu vill sem minnst gera úr því að blaðið hafi með frétt um erlenda ríkisborgara sem þiggja fjárhagsaðstoð, frá Reykjavíkurborg, birt mynd af palestínskri konu sem er í fullri vinnu á leikskóla og tilheyrir því augljóslega ekki þeim hópi sem fréttin fjallar um. Heldur Stefán áfram upprifjun sinni á dómsmálum sem snúa að ofbeldi palestínkskra karlmanna hér á landi og segir það skipta miklu meira máli en það að blaðið hafi birt myndina.
Fjallað var nokkuð um myndbirtingu blaðsins á fimmtudag og í gær. Í fréttinni er greint frá því að meira en helmingur þiggjenda fjárhagsaðtoðar frá Reykjavíkurborg séu erlendir ríkisborgarar og hlutfallslega renni mest til Palestínumanna. Með fréttinni er birt mynd af mótmælum Palestínumanna við utanríkisráðuneytið. Fremst á myndinni er kona að nafni Saraa Almasri. Hún er hins vegar ekki á fjárhagsaðstoð heldur er hún í fullri vinnu á leikskóla og hefur náð góðum tökum á íslensku. Saraa sagði í samtali við Mannlíf að myndbirting af henni með þessari frétt sem hefði ekkert með hana væri að gera væri sár og niðurlægjandi. Meðal þeirra sem gagnrýndu Morgunblaðið fyrir myndbirtinguna var Egill Helgason sjónvarpsmaður.
Sjá einnig: Saraa stígur fram eftir myndbirtingu Morgunblaðsins – „Sárt og niðurlægjandi“
Myndin var síðan fjarlægð úr netútgáfu fréttarinnar en hún var einnig birt í blaðinu sjálfu, sem var þegar farið í dreifingu, og því augljóslega ekki hægt að skipta henni út þaðan.
Aðalatriðið
Stefán Einar skrifaði ekki umrædda frétt en hann segir í Facebook-færslu að myndin skipti ekki höfuðmáli og virðist því ekki telja það tiltökumál að blaðið hafi með myndbirtingunni gefið það ranglega til kynna að Saara væri ekki að vinna fyrir sér:
„Morgunblaðið hefur á síðustu vikum fjallað um birtingarmyndir heiðursofbeldis og kvenfyrirlitningar. Þar er bara um dæmi að ræða sem ratað hafa fyrir dómstóla. Vandinn er miklu útbreiddari. Það veit lögreglan, það veit Kvennaathvarfið, það veit heilbrigðiskerfið. Það vita kennarar í tilteknum skólum í Reykjavík og víðar.“
„Nú verður fólk að opna augun áður en vandinn verður stjórnlaus. Þetta er stóra málið þótt Egill Helgason og Hallgrímur Helgason vinur hans og hitt góða og kebabelskandi góða fólkið hafi fyrst og fremst ógurlegar áhyggjur af myndbirtingum Morgunblaðsins. Þeir hafa aldrei tekið upp hanskann fyrir konurnar í málunum sem Morgunblaðið hefur fjallað um. Það munu þeir aldrei gera.“
Vísar Stefán Einar í færslunni í frétt sem hann skrifar og birtist í Morgunblaðinu í morgun. Í fréttinni er fjallað um dóm yfir palestínskum manni sem beitti fjölskyldu sína margvíslegu ofbeldi þegar þau voru öll sameinuð á Íslandi. Stefán lætur þess ekki getið í færslunni og heldur ekki fyrr en í miðri fréttinni sjálfri að dómurinn var kveðinn upp í september 2025. Stefán Einar hefur að undanförnu birt nokkrar fréttir um slíka dóma sem eru frá síðustu árum en ekki þessu þó, en það hefur ekki verið algengt að fjölmiðlar fjalli um eldri dóma nema þeir tengist þeim dómum sem eru nýfallnir. Í færslunni finnur Stefán Einar Palestínumönnum allt til foráttu og fer ekki í grafgötur með þá skoðun sína að þeir eigi ekki að fá að koma til Íslands þar sem menning þeirra einkennist af kvenhatri og ofbeldi í garð kvenna og barna. Palestínumenn líti á konur sem eign karlmanna. Hann horfir þó framhjá því að áðurnefnd Saraa Almasri vinnur fulla vinnu og sem einstæð móðir sér hún sér og börnum sínum farborða og er því augljóslega ekki eign neins karlmanns.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗