Hélt uppteknum hætti þrátt fyrir ævilanga sviptingu
Lögregla stöðvaði akstur mannsins á Skemmuvegi í Kópavogi 20. janúar. Amfetamín mældist í blóði hans og var hann óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa þess. mbl.is/Eggert
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í tólf mánaða fangelsi fyrir að aka sviptur ökurétti og undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn var sviptur ökurétti ævilangt árið 2018 en hefur síðan ítrekað hlotið fangelsisdóma fyrir að aka þrátt fyrir sviptinguna.
Við ákvörðun refsingar var lagt til grundvallar að hann hefði nú í tíunda sinn gerst sekur um akstur sviptur ökurétti og í sjötta sinn um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Talningin miðast við brot eftir átján ára aldur og innan ítrekunartíma.
Dómurinn var kveðinn upp á fimmtudag og var ævilöng svipting ökuréttar mannsins jafnframt áréttuð.
Játaði brotin skýlaust
Lögregla stöðvaði akstur mannsins á Skemmuvegi í Kópavogi 20. janúar. Amfetamín mældist í blóði hans og var hann óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa þess.
Maðurinn játaði brot sín skýlaust. Málið var tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Verjandinn krafðist vægustu refsingar sem lög leyfðu.
Ítrekaðir fangelsisdómar
Í dóminum er rakinn sakaferill mannsins vegna umferðarlagabrota. Hann hlaut 45 daga fangelsisdóm fyrir akstur sviptur ökurétti árið 2017. Árið eftir var hann dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti.
Þrátt fyrir það hlaut hann fangelsisdóma fyrir akstur sviptur ökurétti árin 2019, 2022, 2023, 2024 og 2025. Í tveimur þeirra var hann einnig sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Síðasti dómurinn fyrir þann sem nú var kveðinn upp féll 17. september 2025. Þá var maðurinn dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og akstur sviptur ökurétti.
Með hliðsjón af fyrri brotum mannsins, sakarefni málsins og dómvenju þótti tólf mánaða fangelsi hæfileg refsing. Honum var einnig gert að greiða 176.700 krónur í málsvarnarþóknun verjanda síns og 165.287 krónur í annan sakarkostnað.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗