Piltur var myrtur fyrir 17 árum – Ábending um niðurgrafna haglabyssu leysti málið

17 árum eftir að Edric Hinton var myrtur hefur fjölskylda hans loksins fengið smá hugarró því lögreglunni tókst að leysa málið.

Hinton var skotinn til bana þegar hann var að hitta kunningja sína eftir að hann lauk vakt á McDonald‘s stað í Michigan. Lögreglan segir að hann hafi einfaldlega verið á röngum stað þegar hann var skotinn.

Lögreglunni tókst nýlega að bera kennsl á tvo menn sem eru taldir hafa verið að verki.

Skotið var úr haglabyssu inn um glugga íbúðar þar sem Hinton stóð. Lögreglumenn komu að honum helsærðum og var hann strax fluttur á sjúkrahús. Hann var úrskurðaður látinn tæpum hálftíma eftir komuna á sjúkrahúsið.

Nokkrir grunaðir voru yfirheyrðir í kjölfarið en yfirheyrslurnar skiluðu engum árangri og að lokum lenti lögreglan í blindgötu.

Hreyfing komst á málið á nýjan leik 2019 þegar Shannon Thielen tók við rannsókn þess. Hann byggði upp tengsl við manneskju sem hafði fengið upplýsingar um morðið frá fólki sem var viðriðið það.

Á endanum sagði manneskjan Thielen hvar haglabyssa, sem var talin hafa verið notuð við morðið, væri grafin.

Lögreglan fann byssuna síðasta haust ásamt fleiri sönnunargögnum. Skothylki, sem fundust á morðvettvanginum 2009, reyndust hafa verið skotið úr byssunni.

Lögreglan tengdi Esteban Reyes Jr. við málið og telur hann hafa skotið úr byssunni umrætt sinn. Lee Anthony Lynn er talinn hafa ekið honum á brott. Þeir eru báðir látnir.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅