Borgaði 3 milljónir fyrir tannaðgerð – Er tannlaus og getur ekki borðað

Pressan

Laugardaginn 7. nóvember 2026 18:30

Skelfilegar þjáningar sem Jackie hefur gengið í gegnum.

Bresk móðir, hin 38 ára Jackie Lynn, fór þrisvar sinnum til Tyrklands til að fá tannlæknaþjónustu. Þetta átti að vera frekar einföld þjónusta en afleiðingin varð að það þurfti að taka allar tennurnar úr henni og hún getur ekki borðað venjulegan mat lengur.

LadBible skýrir frá þessu og segir að Jackie sé ein margra Breta sem hafa farið til Tyrklands til að fá tannlæknaþjónustu sem er mun ódýrari þar en á heimaslóðum. Hormónamagnið í líkama hennar hafði minnkað mikið og hafði þau áhrif á tennurnar að þær molnuðu.

Hún reiknaði með að tannviðgerðir í Tyrklandi myndu kosta hana sem nemur um hálfri milljón króna. En þegar upp var staðið var kostnaðurinn kominn í sem nemur 3,3 milljónum króna. Þess utan höfðu tyrknesku tannaðgerðirnar í för með sér að hún glímdi við lífshættuleg veikindi og gat ekki borðað mat í föstu formi.

Skelfilegar þjáningar sem Jackie hefur gengið í gegnum.

Eftir fyrstu ferðina til Tyrklands fór gamnið fljótt að kárna því nýju tennurnar molnuðu og hún var aftur komin á byrjunarreit. Hún fór þá aftur til Tyrklands til að láta setja krónur á tennurnar. Hún féllst á að fara í rótarfyllingu sem hluta af aðgerðinni.  Hún var svæfð og þegar hún vaknaði komst hún að því að tannlæknirinn hafði gert 15 rótarfyllingar. Svo reið annað áfall yfir þegar hún komst að því að tannlæknirinn hafði ekki sett stakar krónur á tennurnar, heldur hafði hann sett krónubrýr í hana.

„Ég var svæfð og þegar ég vaknaði kvaldist ég. Þetta voru hryllilegir verki, verkir sem náðu til alls líkamans,“ sagði hún.

Hún sagði að endajaxlarnir hafi borið þungan af krónubrúnum og að verkirnir hafi verið hrikalegir. Innan viku fór hún aftur til Tyrklands.

Þar leitaði hún til þriðja tannlæknisins sem sagði að tennurnar hefðu verið slípaðar of mikið niður og mælti með að þær yrðu teknar úr og hún fengi gervitennur.

Í kjölfar þeirrar aðgerðar fékk hún lífshættulega blóðeitrun. Andlitið bólgnaði upp og hún sá ekki neitt út af bólgunum.

Hún er nú með bráðabirgðatennur og bíður eftir nýjum og varanlegum tönnum sem verða settar í hana fyrir áramót.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅