Hilmar heiðraður í Tallin

Hilmar Oddsson veitti verðlaununum viðtöku í Tallin í gærkvöldi.

Hilmar Oddsson veitti verðlaununum viðtöku í Tallin í gærkvöldi. Ljósmynd/PÖFF

Hilmar Oddsson leikstjóri var heiðraður fyrir framlag sitt og ævistarf í þágu kvikmyndagerðar í Tallin í gær. 

Þar fer kvikmyndahátíðin Tallinn Black Nights fram en Hilmar hlaut verðlaunin á setningarathöfninni fyrir framan fjölda fólks í Alexela-tónleikahöllinni.

Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Einstakt framlag til kvikmyndagerðar

Tiina Lokk-Tramberg, stjórnandi hátíðarinnar, veitti heiðursverðlaunin til Hilmars og sagði meðal annars í ávarpi sínu að einlægur, djúpstæður frásagnarmáti einkenndi kvikmyndir Hilmars.

Túlkun hans á íslensku landslagi, menningararfi og tilfinningalífi þjóðarinnar sagði hún að væri persónuleg og einstök.

Þá nefndi hún jafnframt að Hilmar ætti mikilvægan hlut í að móta og styrkja stofnanir og innviði sem íslensk kvikmyndagerð byggir á. Framlag hans til íslenskrar og norrænnar kvikmyndagerðar væri viðamikið og einstakt.

Hilmar með dóttur sinni Heru Hilmarsdóttur, leikkonu og eiginkonunni, Guðlaugu M. Jakobsdóttur, forstöðukonu Alþjóðasviðs HR við hátíðarathöfnina í Tallinn. Ljósmynd/PÖFF

Fyrsti alþjóðlegi leikstjórinn á hátíðinni

Í þakkarávarpi sínu nefndi Hilmar meðal annars tengsl sín við Black Nights-hátíðina í Tallin og Eistland.

Hann var fyrsti alþjóðlegi leikstjórinn sem sýndi kvikmynd á kvikmyndahátíðinni í þegar hún var haldin í fyrsta sinn 1996.

Það var mynd hans, Tár úr steini, um tónskáldið Jón Leifs. 25 árum síðar var kvikmynd hans Á ferð með mömmu heimsfrumsýnd á Black Nights 2022. Þá sigraði hún keppnina sem Besta kvikmynd og hlaut hin eftirsóttu Grand Prix verðlaun.

Kvikmyndahátíðin var sett með mikilli viðhöfn en í ár á Tallinn Black Nights á 30 ára afmæli. Hátíðin hefur vaxið gríðarlega í umfangi og mikilvægi frá stofnun og flokkast frá 2014 sem alþjóðleg A-kvikmyndahátíð með Toronto, Cannes, Berlín, Feneyjum ofl.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅