Myndir: Súludans á öðrum degi Airwaves
Tónlistarveislan hélt áfram á öðrum degi Iceland Airwaves í miðborg Reykjavíkur í gær.
Dagskráin hófst á Lemmy í Austurstræti með framkomu listadúettsins Apex Anima & FRZNTE. Þar var boðið upp á tilraunakennda raftónlist og framúrstefnulegan sviðsflutning sem meðal annars fól í sér súludans.
Í kjölfarið var komið að portúgölsku hljómsveitinni Them Flying Monkeys sem náði vel til áhorfenda. Því næst var New York-sveitin Victoryland í ágætu formi og matreiddi tilraunakennt indie-popp af miklu öryggi. Ekki dugðu minna en þrír gítarar og sándið varð fyrir vikið nokkuð krefjandi. Söngvari sveitarinnar sagði hana á sínum fyrsta Evróputúr en meðlimir héldu fljótt af landi brott og eiga bókaða tónleika í London í kvöld.
Færeyingar tóku yfir Iðnó og fyrstur á svið var Sakaris. Þar á eftir var komið að Tunghoyrt sem skipuð er fjórum 19 ára strákum. Vakti sveitin talsverða hylli. Ekki var síður vel tekið á móti rappsveitinni RSP sem keyrði í gegnum þétt prógramm og náði salnum vel á sitt band. Í lokin skipuðu meðlimir RSP gestum að setjast niður og standa upp til að ná stemningunni í einu laginu og að sjálfsögðu hlýddi allur salurinn.
Þétt var skipað í Iðnó og ekki léttist þar á þegar Janus Rasmussen var síðasti Færeyingurinn á svið.
Rappsveitin Úlfur Úlfur lokaði kvöldinu í Iðnó með góðri partístemningu.
Ungur og upprennandi Íri í Fríkirkjunni
Aðeins rólegra var í Fríkirkjunni þar sem írski tónlistarmaðurinn Dove Ellis mætti með hljómsveit sína. Hann bauð upp á indie-blöndu af kammerpoppi og þjóðlagatónlist og mæltist hún vel fyrir. Það þarf kannski ekki að koma á óvart enda hitaði Dove Ellis upp fyrir hljómsveitina Geese á nýlegu tónleikaferðalagi hennar.
Á sama tíma var Agent Fresco með hörkutónleika í Ráðhúsinu. Að þeim loknum var komið að afar forvitnilegu bandi, Formal Sppeedwear frá Bretlandi. Í kynningu á vefsíðu Airwaves segir að tónlist sveitarinnar sveimi á mótum nýbylgju, hljóðgervlapopps og listarokks. Margir í salnum höfðu á orði að andi Davids Byrne hefði svifið þarna yfir vötnum.
Þar á eftir var komið að aðalnúmerinu, hinni sjóðheitu íslensku sveit Spacestation. Augljóst var að eftirvænting var í loftinu og salurinn í Ráðhúsinu var orðinn vel þéttur þegar drengirnir mættu á svið.
Þeir rúlluðu í gegnum mörg af sínum bestu lögum og þar voru lög af nýútkominni plötu, Who killed Spacestation?, áberandi. Gestir voru vel með á nótunum og tónleikarnir voru vel heppnaðir. Sá allra mest peppaði var þó trommuleikari Spacestation sem fór algerlega á kostum, var fljótt kominn úr að ofan og gaf sig allan í framkomuna. Frábær frammistaða hjá frábæru bandi.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



























