Andri Lucas áfram sjóðheitur

Andri Lucas Guðjohnsen skoraði enn og aftur.

Andri Lucas Guðjohnsen skoraði enn og aftur. mbl.is/Ólafur Árdal

Andri Lucas Guðjohnsen skoraði enn eitt markið er Blackburn sigraði West Ham, 2:1, á heimavelli í ensku B-deildinni í fótbolta í dag.

Íslenski landsliðsframherjinn kom Blackburn yfir á 54. mínútu og fór síðan af velli á 71. mínútu.

Andri hefur nú skorað tíu mörk í fjórtán deildarleikjum á tímabilinu og ellefu mörk í fimmtán leikjum í öllum keppnum með Blackburn.

Blackburn er í 13. sæti deildarinnar með 21 stig eftir 15 leiki.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅