Valur hafði betur gegn botnliði HK
Valur vann mikilvægan 27:22-sigur í úrvalsdeild kvenna í handbolta í dag þegar liðið fékk botnlið HK í heimsókn.
Valur situr í þriðja sæti deildarinnar með tólf stig en HK er á botninum með tvö stig þegar átta leikir eru liðnir.
Staðan var 16:15 fyrir í hálfleik en Valskonur tóku síðan yfir leikinn í seinni hálfleik og unnu að lokum nokkuð öruggan sigur
Ásdís Þóra Ágústsdóttir var markahæst í liði Vals með sex mörk. Hafdís Renötudóttir átti stórleik í marki Vals en hún varði 18 skot, þar af þrjú af fjórum vítaköstum.
Þrátt fyrir tap átti Hekla Sóley Halldórsdóttir átti góðan leik í liði HK en hún skoraði fimm mörk úr jafn mörgum skotum.
Selfoss hafði betur
Selfoss vann fjögurra marka sigur, 26:22, þegar liðið fékk KA/Þór í heimsókn í dag.
Selfyssingar eru nú í sjötta sæti deildarinnar með sjö stig en KA/Þór er í áttunda sæti með fjögur stig.
Selma Þóra Jóhannsdóttir átti einnig stórleik í marki Selfyssinga og varði sextán skot. Hulda Hrönn Bragadóttir var markahæsti leikmaður leiksins með sjö mörk.
Markahæst í liði Akureyringa var Sólveig Lára Kristjánsdóttir sem gerði sex mörk úr sextán skotum.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗