Stórsigur lærisveina Dags

Dagur Sigurðsson fagnaði sigri.

Dagur Sigurðsson fagnaði sigri. AFP

Króatía vann öruggan útisigur á Finnlandi, 35:25, í undankeppni EM karla í handbolta sem fram fer árið 2028.

Staðan í hálfleik var 19:12 og var sigurinn aldrei í hættu í seinni hálfleik hjá króatíska liðinu, sem Dagur Sigurðsson þjálfar.

Mario Šoštarić skoraði sjö mörk fyrir Króatíu og Tin Lučin gerði sex.

Króatar hafa unnið báða leiki sína í riðlinum til þessa. Króatar skoruðu alls 81 mark í leikjunum tveimur en þeir unnu Litáen, 46:28, í fyrri leiknum. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅