Keyrði inn á torgið og hóf skothríð: Einn að verki

Erlent | AFP | 7.11.2026 | 17:19

Maðurinn er talinn hafa ekið þessum svarta bíl á vettvang þar sem hann hóf skothríð með þeim afleiðingum að í það minnsta fimm manns létu lífið. AFP/Bartosz Siedlik

Í það minnsta fimm eru látnir eftir að árásarmaður ók bifreið sinni á aðaltorgið í miðbæ Kraká í Póllandi og hóf skothríð á gangandi vegfarendur. Um tólf manns særðust í árásinni.

Lögreglumenn á staðnum tjáðu AFP-fréttaveitunni að árásarmaðurinn hefði verið einn að verki.

Skotárásarmaðurinn skiptist á skotum við lögreglumenn áður en hann var handtekinn. Hann er nú í haldi lögreglu.

Árásarmaðurinn er talinn hafa verið einn að verki.

Árásarmaðurinn er talinn hafa verið einn að verki. AFP/Bartosz Siedlik

Varð fyrir byssuskoti lögreglumanna

Árásarmaðurinn varð fyrir byssuskoti og var fluttur á sjúkrahús í grenndinni.

Torgið í Kraká, sem er næststærsta borg Póllands, er vinsæll ferðamannastaður.

Donald Tusk, forsætisráðherra landsins, lýsti árásinni í færslu á samfélagsmiðlum X sem „sorglegri skotárás“.

Torgið þar sem skotárásin átti sér stað í Kraká.

Torgið þar sem skotárásin átti sér stað í Kraká. AFP/Bartosz Siedlik

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅