Fyrirliðinn hetja Englandsmeistaranna
Englandsmeistarar Arsenal unnu torsóttan 1:0-sigur á móti nýliðum Hull í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta á Emirates-leikvanginum í Lundúnum í dag.
Eftir leikinn er Arsenal í toppsætinu með 27 stig, sex stigum meira en Manchester City, sem á þó leik til góða eftir tíu leiki, en Hull er í þrettánda með ellefu.
Fyrirliðinn Martin Ödegaard skoraði sigurmark Arsenal á 72. mínútu leiksins.
Þá komst Noni Madueke í skotfæri og lét vaða en Konstantinos Tzolakis markvörður Hull varði skotið út í teiginn. Þar var Ödegaard fyrstur að átta sig og setti boltann í netið, 1:0.
Madueke fékk síðan sjálfur dauðafæri undir lok leiks eftir frábæra hælsendingu frá Mikel Merino. Kantmaðurinn reyndi hins vegar að sóla Tzolakis og komst ekki í skotið.
Jafnt á Craven Cottage
Fulham og Newcastle gerðu þá 1:1-jafntefli á Craven Cottage í Lundúnum.
Fulham er í 15. sæti deildarinnar með tíu stig en Newcastle er í ellefta með tólf.
Jacob Murphy kom Newcastle yfir á 80. mínútu en einungis þremur mínútum síðar jafnaði Rodrigo Muniz metin, 1:1, og þar við sat.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗