Keyrði inn á torgið og hóf skothríð: Einn að verki
Erlent | AFP | 7.11.2026 | 17:19
Maðurinn er talinn hafa ekið þessum svarta bíl á vettvang þar sem hann hóf skothríð með þeim afleiðingum að í það minnsta fimm manns létu lífið. AFP/Bartosz Siedlik
Í það minnsta fimm eru látnir eftir að árásarmaður ók bifreið sinni á aðaltorgið í miðbæ Kraká í Póllandi og hóf skothríð á gangandi vegfarendur. Um tólf manns særðust í árásinni.
Lögreglumenn á staðnum tjáðu AFP-fréttaveitunni að árásarmaðurinn hefði verið einn að verki.
Skotárásarmaðurinn skiptist á skotum við lögreglumenn áður en hann var handtekinn. Hann er nú í haldi lögreglu.
Varð fyrir byssuskoti lögreglumanna
Árásarmaðurinn varð fyrir byssuskoti og var fluttur á sjúkrahús í grenndinni.
Torgið í Kraká, sem er næststærsta borg Póllands, er vinsæll ferðamannastaður.
Donald Tusk, forsætisráðherra landsins, lýsti árásinni í færslu á samfélagsmiðlum X sem „sorglegri skotárás“.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

