Bono játar að U2 hafi „gengið of langt“
Pressan
Laugardaginn 7. nóvember 2026 17:30
Bono er söngvari U2. Mynd/Getty Images
Bono, söngvari írsku rokkhljómsveitarinnar U2, segir að hljómsveitin hafi gengið of langt árið 2015 þegar hún gaf út hljómplötuna „Songs of Innocence“.
Það sem hún gerði þá var að hljómplötunni var bætt við reikninga allra áskrifenda iTunes. Fengu 500 milljón notendur því hljómplötuna ókeypis inn á reikning sinn og skipti engu hvort notendurnir vildu hana eða ekki.
Í samtali við The New York Times sagði Bono: „Ég gekk of langt með þetta.“
Hann játaði að þáverandi framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar, Paul McGuinness, hafi að mestu verið sammála Tim Cook, stofnanda Apple, um þetta.
„Hann sagði nokkurn veginn það sama og Tim Cook sagði þegar ég kynnti hugmyndina: „Þú hefur eytt lífinu í að fá fólk til að borga fyrir tónlist. Af hverju viltu gefa eitthvað?“
Bono sagði að honum fyndist sem hljómsveitin hefði verið að „gera tilraun“ með þessari aðferð. „Ég meina, við vorum að gera tilraun. Við vildum sjá hvort við gætum fengið Apple eða eitthvað annað fyrirtæki til að borga fyrir tónlistina okkar og dreifa henni síðan. Það verður að gera tilraunir til að bæta tónlistarbransann. Það er ótrúlegt hversu lítið aðrir tónlistarmenn fá greitt og það er skelfilegt. En já, ég ber ábyrgðina á þessu.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗