Bjarki með enn einn stórleikinn
Bjarki Hrafn Garðarsson átti enn einn stórleikinn fyrir U19 ára lið Dortmund er liðið sigraði Osnabrück, 3:2, í leik U19 ára liða félaganna í dag.
Sóknarmaðurinn hefur farið á kostum síðan hann kom til Dortmund frá Stjörnunni og raðað inn mörkum.
Hann gerði fyrstu tvö mörk Dortmund sem er á toppi síns riðils með 24 stig eftir tíu leiki.
Bjarki hefur nú skorað tíu mörk í níu deildarleikjum með U19 ára liði Dortmund á tímabilinu.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗