Cecilía á enn eftir að fá á sig mark
Cecilía Rán Rúnarsdóttir hélt hreinu í sjötta skiptið í röð í ítölsku A-deild kvenna í knattspyrnu þegar Inter Mílan vann 3:0-sigur á nágrönnum sínum í AC Mílan í dag.
Cecilía hefur byrjað tímabilið stórkostlega en hún hefur enn ekki fengið á sig mark í deildinni þegar sex leikir eru liðnir.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom einnig við sögu í leiknum en hún kom inn á sem varamaður á 71. mínútu.
Inter er enn taplaust á tímabilinu og situr í öðru sæti deildarinnar með 16 stig. AC Mílan er í áttunda sæti með sex stig.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗