Fyrirliðinn hetja Englandsmeistaranna

Englandsmeistarar Arsenal unnu torsóttan 1:0-sigur á móti nýliðum Hull í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta á Emirates-leikvanginum í Lundúnum í dag.

Eftir leikinn er Arsenal í toppsætinu með 27 stig, sex stigum meira en Manchester City, sem á þó leik til góða eftir tíu leiki, en Hull er í þrettánda með ellefu.

Fyrirliðinn Martin Ödegaard skoraði sigurmark Arsenal á 72. mínútu leiksins.

Þá komst Noni Madueke í skotfæri og lét vaða en Konstantinos Tzolakis markvörður Hull varði skotið út í teiginn. Þar var Ödegaard fyrstur að átta sig og setti boltann í netið, 1:0.

Madueke fékk síðan sjálfur dauðafæri undir lok leiks eftir frábæra hælsendingu frá Mikel Merino. Kantmaðurinn reyndi hins vegar að sóla Tzolakis og komst ekki í skotið.

Martin Ödegaard fyrirliði Arsenal reynir sendingu í leiknum.

Martin Ödegaard fyrirliði Arsenal reynir sendingu í leiknum. AFP/Henry Nicholls

 Jafnt á Craven Cottage

Fulham og Newcastle gerðu þá 1:1-jafntefli á Craven Cottage í Lundúnum. 

Fulham er í 15. sæti deildarinnar með tíu stig en Newcastle er í ellefta með tólf. 

Jacob Murphy kom Newcastle yfir á 80. mínútu en einungis þremur mínútum síðar jafnaði Rodrigo Muniz metin, 1:1, og þar við sat. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅